Velkomin í Norðurfjörð!

Í og við Norðurfjörð er margt að sjá og ber þar helst að nefna siglingarnar með Sædísi, sundlaugina á Krossnesi, minja- og handverkshúsið Kört í Trékyllisvík og margt fleira.  Hér á síðunni má glöggva sig á öllu því helsta sem fram fer á svæðinu auk upplýsinga um gistingu og tjaldsvæði í Árneshreppi.
 
 
Við í Kaffi Norðurfirði bjóðum alla hjartanlega velkomna í sumar þar sem gestir og gangandi geta fengið sér hressingu og notið einstaks útsýnis yfir fjörðinn.
 
Það er opið hjá okkur frá 8:30 til 21:00 alla daga, eða eftir samkomulagi.  Við bjóðum upp á lengri opnunartíma fyrir hópa og höfum til morgunverðarhlaðborð fyrir þá sem það vilja.  Miðað er við að hópurinn þurfi að innihalda 6 eða fleiri. 
 
 
Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar og allar ábendingar og fyrirspurnir vel þegnar á póstfangið kaffi@nordurfjordur.is eða í gegn um fyrirspurnarhnappinn hér til vinstri.  Einnig er hægt að ná í okkur í símanúmer 451-4034 / 696-1397.
 
 

 

AssA - Þekking og Þjálfun

 
AssA, þekking og þjálfun býður upp á nýja nálgun í fræðslu og ferðaþjónustu.  Meginmarkmiðið er að staldra við, njóta augnabliksins og eignast öðruvísi minningar. Upplifa sjálfan sig, samferðafólkið og náttúruna á eftirminnilegan hátt. 
 
 

Siglingar um Strandir

 
Freydís sf. býður upp á áætlunarsiglingar með Sædísi ÍS-67 frá Norðurfirði þrisvar í viku auk útsýnisferðar á laugardögum í sumar. Sædís tekur allt að 30 farþega og var keypt ný vorið 2006. 
 
 

Gisting í Norðurfirði

 
Í Norðurfirði er að finna margskonar gistimöguleika.  Litlar og heimilislegar íbúðir með uppábúnum rúmum og heimagistingar.